Samfés-Con 2024

แชร์
ฝัง
  • เผยแพร่เมื่อ 4 ก.พ. 2024
  • Í byrjun janúar 2024 var Samfés-Con haldið í Stapaskóla, Reykjanesbæ. viðburð sem hefur reynst vera lykilatriði í þróun og framförum á sviði ungmenna- og félagsmiðstöðvastarfs á landinu. Samfés-Con var ekki bara með fjölbreytta og fræðandi dagskrá heldur buðum við einnig upp á ómetanlegt tækifæri fyrir starfsfólk til að tengjast, miðla þekkingu og sameina krafta sína í þágu framtíðarinnar.
    Markmiðið með þessum viðburði er að miðla þekkingu og kynna nýjungar, og að styrkja þau tengsl sem myndast milli einstaklinga þegar þeir deila sameiginlegum ástríðum og markmiðum.
    Í ár var Dagskráin fjölbreytt og áhugaverð. Viðburðurinn bauð upp á allt frá kynningum á nýjungum í tæknigeiranum til ítarlegra umræðna um lagaleg og menntunarleg málefni.
    Við viljum þakka öllum sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að gera þennan viðburð geggjaðan.
    Við hlökkum til að sjá ykkur á Samfés-Con 2025!

ความคิดเห็น •