Lítið hjarta
ฝัง
- เผยแพร่เมื่อ 24 ต.ค. 2015
- Lag og texti: Thorunn Erna Clausen
Útsetning og upptökustjórn: Vignir Snær Vigfússon
Gítar: Vignir Snær Vigfússon
Trommur: Benedikt Brynleifsson
Píanó: Pálmi Sigurhjartarson
Bassi: Róbert Þórhallsson
söngur: Þórunn Erna Clausen
Myndvinnsla Ólöf Erla Einarsdóttir
kjóll: Júniform
Music and lyrics: Thorunn Erna Clausen
Music production: Vignir Snær Vigfússon
Drums: Benedikt Brynleifsson
Piano: Pálmi Sigurhjartarson
Bass: Róbert Þórhallsson
vocals: Thorunn Erna Clausen
Artwork: Ólöf Erla Einarsdóttir
dress: Júniform
Lítið hjarta
Lítið hjarta, lítil sál
sem að þerrar öll mín tár
gull sem ég mun alltaf dá
dýrmætasta sem ég á.
Lítið hjarta, lítil sál
stundum lífið veitir sár,
lofa þér minn drengur smár
vernda þig um öll mín ár.
Ég horfi í augun þín svo hlý
og sé þar ást sem bjargar og bræðir ský.
Þú fyllir mig af von um að birti á ný,
ég bið fyrir því,
megi gæfan þér fylgja,
lífið gleði þér færa,
ástin þig finna,
er þú fullorðinn ert.
Lítið hjarta, lítil sál
leitar skjóls í faðmi hjá,
fegurð þína og blíðu sá
þegar fyrst ég hélt þér á.
Lítið hjarta, lítil sál
líða hratt þín æskuár
ég veit það gerist ósjálfrátt
ungur maður verður brátt.
Ég horfi í augun þín svo hlý
og sé þar ást sem bjargar og bræðir ský.
Þú fyllir mig af von um að birti á ný,
ég bið fyrir því
megi gæfan þér fylgja,
lífið gleði þér færa,
ástin þig finna,
er þú fullorðinn ert.
Megi gæfan þér fylgja,
lífið gleði þér færa,
ástin þig finna,
er þú fullorðinn ert.
It sounds amazing! :-D
I don't know shit about what she singing, but it sounds incredible!
Thank you Mark :) It's a song about how my two boys saved me through my greatest sorrow when I lost my husband. And also about a mothers love, hoping that they will get to experience a deep love and happiness in the future.
ofsalega fallegt lag...
Takk innilega fyrir það
Thank you my dear friend