Guðni Ágústsson 75 ára - Fallegur dagur

แชร์
ฝัง
  • เผยแพร่เมื่อ 14 พ.ค. 2024
  • Ég varð á dögunum þeirrar ánægju aðnjótandi að filma heila afmælisveislu. Barnið heitir Guðni Ágústsson, sem varð 75 ára, alveg óvart. Okkur Guðna hefur verið vel til vina. Ég filmaði „Jóhannes og eftirhermuna“ með Fridda vini mínum. Við Friddi filmuðum Guðna með Óttari sálfræðingi á Þingvöllum. Allt bíður það birtingar. Hann bað mig sum sé að filma 75 ára herlegheitin í apríl og hvað gerir maður ekki fyrir vini sína? Hins vegar vill hann ekki birta afurðina alveg strax. Kannski eftir þúsund ár, sagði kallinn. En ég ætla samt að birta hér stutt myndbrot þar sem ungur drengur, frændi afmælisbarnsins, söng gamla barninu til heiðurs. - Ég vona að höfundur og eigandi lagsins, Bubbi Morthens, fyrirgefi okkur. - Helgi Jónsson.

ความคิดเห็น •