Súsanna - Kammerkórinn Carmina
ฝัง
- เผยแพร่เมื่อ 18 ก.ย. 2024
- Félagar úr kammerkórnum Carminu syngja lagið Súsanna í Sjónvarpsþættinum Útúrdúr á RÚV. (Smellið á 'Show more' fyrir meiri upplýsingar).
Lagið er varðveitt í einu merkilegasta tónlistarhandriti Íslendinga, Melodíu frá 1660. Handritið ber þess merki hve vel tengt Ísland var tónlistarmenningu Evrópu á 17. öld. Mörg laganna í handritinu eiga sér fyrirmyndir í vinsælum lögum frá Englandi, Frakklandi, Ítalíu og víðar, og eru textarnir ýmist frumsamdir á íslensku eða mis-lauslegar þýðingar á upprunalegum kvæðum.
Súsanna, eins og hún birtist í Melodíu, er frönsk að uppruna, heitir á frummálinu Susanne un jour og naut mikilla vinsælda.
Súsanna - sannan guðs dóm reyndir þú þá,
er hann í neyðinni þjer stóð í hjá,
og sendi út sinn trúlynda þjón Daniel,
sakleysi þitt svo að hann birti vel,
þá svikafullir tveir slæg þjer umsát veittu,
báðir grjóti börðust þeir, brátt svo í dauðann settir;
því svo vill guð varðveita þá sem af öllu hjarta hans leita.
Súsanna, sannlega var þjer það frítt,
þá guð forsvaraði meinleysið þitt.
Félagar úr Carminu:
Marta Guðrún Halldórsdóttir
Guðrún Edda Gunnarsdóttir
Guðmundur Vignir Karlsson
Hafsteinn Þórólfsson
Efnið er úr öðrum þætti sjónvarpsþáttarins Útúrdúrs. Hann er aðgengilegur í heild sinni í Sarpinum á vefsíðu RÚV:
www.ruv.is/sarp...
Blogg þáttarins: uturdur.wordpre...
Vefsíða þáttarins: ruv.is/uturdur
Facebook-síðan: / sjonvarpsthatturinnutu... .
love this!
AMAZING!!!!!