Miklabraut í stokk - Tillaga Arkís, Landslags og Mannvits

แชร์
ฝัง
  • เผยแพร่เมื่อ 20 ต.ค. 2024
  • Tillaga Arkís, Landslags og Mannvits
    Miklatorg er nýtt og fjölbreytt miðsvæði sem býður upp á verslun, þjónustu og atvinnuhúsnæði í bland við fjölbreyttar íbúðagerðir. Lega Borgarlínu fellur vel að þessari nýju, þéttu borgarbyggð, enda er Borgarlínan eitt af lykilstefnum í þróun byggðarmynstursins.
    Gert er ráð fyrir 3-5 hæða byggð sem sækir formtungumál og yfirbragð til þeirra rótgrónu hverfa sem umfaðma Miklatorg. Randbyggðarmynstur er því mest áberandi við suður- og vesturhluta svæðisins, næst Hlíðarenda, en stakstæðar byggingar verða algengari eftir því sem nær dregur Hlíðum og Norðurmýri.

ความคิดเห็น •