Stockholm Stories | Lífsstíls áskorun, jólastemning & pastagerð

แชร์
ฝัง
  • เผยแพร่เมื่อ 26 ส.ค. 2024
  • Hej allihopa!
    Stulli kom með þá hugmynd í síðustu viku að við myndum skella okkur í smá lífsstíls áskorun eftir ansi langan tíma af hreyfingarleysi og sukki. Ég fer yfir það í vloginu hvað felst í þessari áskorun okkar en ég verð að segja vá hvað mér líður vel í líkamanum. Vissulega ansi miklir strengir sem fylgdu fyrstu dagana en nú upplifi ég mig svo hrausta, sem er einstaklega góð tilfinning. Ég veit að fyrir einhverja gæti þetta litið út fyrir að vera svolítið extreme en fyrir betra samhengi þá er ég mikið að læra heima þessa dagana eða byrja ekki fyrr en 13 þannig að það er nokkuð auðvelt að viðhalda þessu. Ég vil samt sem áður hvetja þá sem lesa þetta til að setjast niður og hugsa hvort að það sé eitthvað í ykkar lífsstíl sem þið viljið breyta eða bæta, skrifa það niður, ásamt einhverju plani eða markmiði, og kýla á það! Tilfinningin er þess virði, ég lofa.
    Þangað til næst 🥰

ความคิดเห็น •