Legstaðaleit - Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson

แชร์
ฝัง
  • เผยแพร่เมื่อ 12 ก.ย. 2024
  • Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson fæddist 11. apríl 1945 í Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjum. Vilhjálmur er einn ástsælasti söngvari Íslands fyrr og síðar, og skín frægðarsól hans jafn skært í dag og þegar söngferill hans stóð sem hæst.
    Þann 28. mars 1978 var Vilhjálmur staddur í Lúxemborg á vegum Arnarflugs, en hann var flugmaður hjá því félagi. Var hann einn á ferð í bílaleigubíl er bíll hans fór út af veginum og lenti á tré. Lést hann samstundis.
    Vilhjálmur var 32 ára að aldri og lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn.
    Vilhjálmur hvílir í Fossvogskirkjugarði.

ความคิดเห็น •