Hvernig verður bók verður til: Andri Snær Magnason

แชร์
ฝัง
  • เผยแพร่เมื่อ 16 ก.พ. 2014
  • Andri Snær Magnason, sem hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin í þriðja sinn, talaði um tilurð verka sinna í fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? fimmtudaginn 13. febrúar 2014. M.a. var staldrað við Söguna af bláa hnettinum, Lovestar og Draumalandið.
    Andri Snær er Árbæingur í fjórða lið. Hann hóf rithöfundarferil sinn árið 1995 með ljóðbókinni Ljóðasmygl og skáldarán, þar sem hann segir fuglunum að snauta því hann sé að yrkja ljóð um vorið. Síðan hefur hann sent frá sér ritverk af ýmsu tagi; ljóð, smásögur, skáldsögur, leikrit, kvikmyndahandrit og fleira. Verk hans hafa vakið fádæmi athygli og borið hróður hans yfir á tugi tungumála.
    Fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? hefur verið haldið úti af námsbraut í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands frá 2009. Þar hafa margir af virtustu höfundum þjóðarinnar rætt um ritverk sín.

ความคิดเห็น •