Það sem var!
ฝัง
- เผยแพร่เมื่อ 30 ม.ค. 2025
- Það sem var
Var og verð, eru systur
Hér og nú veita val!
Ég var og ég verð, eru mystur
Hér og nú hef ég val, um hvert ég skal!
Það sem var, er sem reykur!
Sem ekki helst í hendi.
Því vel ég, hvergi smeykur!
Gjöfina, sem Guð okkur sendi!
Hjartað mitt fyllt, af heitri ást!
Þú himna faðir, sem ég elska svo heitt!
Ég á sigurinn vísan, án þess að kljást.
Því með blóði þínu, fékkst fyrir líf mitt greitt
Ó að allir fái þig, í tíma að sjá!
Er bæn mín til þín, algóði Guð.
Að allir muni valið, í tíma fá.
Ó Guð, heyr mitt bæna suð.
Því það er núna! Opnið augun nú!
Sjáið það sem, heiminum er leynt!
Vakið, vonið, játist Jesús í trú
Því á morgunn, gæti það verið of seint!
Höfundur: Kristinn Ingi Jónsson
(Endurbætt útgáfa)