Hátíðarfundur bæjarstjórnar á 50 ára afmæli Grindavíkurbæjar

แชร์
ฝัง
  • เผยแพร่เมื่อ 10 เม.ย. 2024
  • Á hátíðarfundi bæjarstjórnar í gær, 10. apríl, fluttu forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, og forseti bæjarstjórnar, Ásrún Kristinsdóttir, hátíðarávörp.
    Í ávarpi sínu rakti Guðni að hann hafi flest ár í forsetatíð sinni heimsótt Grindavík í opinberum erindagjörðum. Í hvert sinn fann hann þann kraft, þá elju og þá samkennd sem ríkir í Grindavík. Færði hann Grindvíkingum hlýjar kveðjur fyrir hönd allrar þjóðarinnar. Lauk hann ræðu sinni á orðunum „við gefumst ekki upp“.
    Ásrún færði þakkir fyrir allt það góða sem hefur verið gert fyrir framgang bæjarfélagsins og íbúa þess. Það hafi verið ánægjulegt að finna samhug landsmanna sem staðið hafa með íbúum Grindavíkur. Hún hvatti jafnframt til jákvæðni og bjartsýni fyrir framtíðinni.

ความคิดเห็น •